fbpx

VINNINGSHAFAR #iittalaisland

Samstarf

VÁ! #iittalaisland gjafaleikurinn á Instagram fór fram úr mínum björtustu vonum og voru fleiri en 500 myndir sendar inn. Þegar vinningurinn er svona veglegur þá er augljóst að fagurkerar þessa lands taki aldeilis við sér og það voru ótrúlega margar fallegar myndir sendar inn enda myndefnið ekki af verri endanum og iittala vörur njóta einnig gífurlegra vinsælda hér á landi. Vinningshafinn hlýtur í verðlaun glæsilegan Leimu lampa frá iittala og vegna frábærrar þátttöku var ákveðið að veita í aukavinning Aarre vegghanka frá iittala sem ég veit að mörgum dreymir um að eignast.

Í dómnefnd var ég ásamt Unni Erlendsdóttur hjá Ásbirni Ólafssyni sem er innflutningsaðili Iittala á Íslandi. Við vorum lengi að komast að niðurstöðu því það var svo hrikalega erfitt að velja úr, en hér að neðan má sjá vinningsmyndina sem er alveg gullfalleg. Það var hún Viktoría H. Kjartansdóttir sem á heiðurinn af henni og hlýtur hún í verðlaun Leimu lampann fallega. TIL HAMINGJU ♡

Og svo voru það aukaverðlaunin og var það Andrea Magnúsdóttir sem á heiðurinn af þessari fallegu mynd og hlýtur í verðlaun Aarre vegghankann. TIL HAMINGJU ♡

Ég er spennt að afhenda vinningshöfum vinningana sína og kæru Viktoría og Andrea – þið megið gjarnan senda mér póst.

Takk fyrir frábæra þátttöku í gjafaleiknum, mikið hafði ég ótrúlega gaman af því að fara yfir allar myndirnar og sjá smá frá ykkur! Eigið annars ljúfa og góða helgi!

Ég er annars komin í gírinn á Snapchat – sjáumst þar @svartahvitu.

 

 

10 ÓSKIR FYRIR VETURINN

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

Skilaboð 1

  1. Andrea

    11. November 2017

    Jessssss en gaman ❤️
    TAKK fyrir mig ??