Verslunin Malmö Modern er algjört must see ef þú átt leið til Malmö á næstunni og átt pláss í töskunni fyrir einn til tvo fallega muni til að skreyta heimilið. Þetta er ein af fallegri verslunum sem ég hef séð, þó hef ég aldrei farið þangað en ég hef lesið um hana í tímaritum og fylgi þeim líka á Instagram, það fær að vera nóg í bili:) Einnig halda þeir úti ágætis vefverslun sem sjá má betur hér fyrir áhugasama. Það skýn alveg í gegn að þau sem reka þessa verslun hafa ástríðu fyrir hönnun, það sést langar leiðir og þannig verslanir er ekki annað hægt en að elska. Og mæla með!
Algjört augnakonfekt þessi verslun, ég mæli svo sannarlega með að kíkja við hjá þeim við tækifæri. -Heimilisfangið er Skeppsbron 3.
Eigum við svo aðeins að ræða þennan fína gyllta ananas sem er að slá í gegn í innnahússtímaritum uppá síðkastið? Ægilega smart og skemmtilegt stofupunt, hann kostar um 9.000 kr. í Malmö Modern sem er svipað verð og hollenski framleiðandinn Pols Pottern selur hann á. En á Íslandi kostar hann 19.900 kr!
Skrifa Innlegg