fbpx

VERK DAGSINS

HeimiliPersónulegt

Jæja, þið eigið eflaust ekki eftir að trúa því en það var heil mynd hengd upp á vegg í dag! Það kalla ég alveg heilmikið afrek fyrir valkvíða Svönu sem getur sjaldan tekið svona “varanlegar” ákvarðanir.

IMG_0898 IMG_0899 copy

Screen Shot 2014-08-24 at 9.13.02 PM

Ég ætla að eyða kvöldinu mínu uppi í sófa með Justin Timberlake live frá Kórnum -hér- og halda tiltektaræðinu áfram. Hver veit nema það komi bara öllu af stað;) #39vikur

-Svana

 

SUNNUDAGSTILTEKT

Skrifa Innlegg

9 Skilaboð

  1. Gugga.

    25. August 2014

    Flott plaggatið :) Hvar léstu innramma það og hvað kostaði það?

    • Svart á Hvítu

      25. August 2014

      Ég fór með það í Innrömmun Hafnarfjarðar… fékk reyndar afslátt þar sem ég þekki til eigandans, en þetta var um 10 þús samt… Og spónlögð eik, ekki gegnheil.
      -Svana

  2. Margrét

    25. August 2014

    Fallegt hjá þér! Plakatið kemur sjúkt vel út á veggnum :)

  3. Rósa

    25. August 2014

    Hvaðan er glerborðið/hliðarborðið? :)

    • Svart á Hvítu

      25. August 2014

      Ég keypti það á e-i skransölu… á svo eitt hærra og mjórra en þetta sem ég fann í Góða Hirðinum. Habitat er hinsvegar með mjööög falleg svona kubba glerborð, alveg dýrari týpan, mitt fölnar við hliðina á því:)
      -Svana

  4. Guðrún ólafsdóttir

    26. August 2014

    Hvadan er röndótta teppið? Mjög skotin í því :)

  5. Bríet Kristý

    27. August 2014

    ég er mikið í ramma pælingum með scintilla plaggatið mitt. Þetta kemur betur vel út en ég hafði ímyndað mér svona sem eik, var einmitt búin að leiða hugann að því eða hvítu.