Ef það er eitthvað sem ég fæ aldrei nóg af þá eru það falleg plaköt… og ég held að það sama megi segja um ykkur því þetta er ein af þeim spurningum sem ég fæ aftur og aftur, að gera færslu með flottum plakötum. Það er til alveg gífurlegt úrval af plakötum hér heima og því eitthvað til fyrir alla, í þetta sinn tók ég bara saman plaköt sem fást á Íslandi, en það er efni í aðra færslu plaköt sem hægt er að panta erlendis frá. Helsti kosturinn við það að skreyta heimilið með plakötum er sá að þau eru flest á mjög viðráðanlegu verði og því vel hægt að breyta til og fá sér nýtt til að fríska upp á heimilið sem er góður kostur. Það að eiga einstakt listaverk er nefnilega eitthvað sem er ekki á allra færi og því er eftirspurnin eftir ódýrari skreytingum fyrir heimilið alveg gífurlega mikil og framboðið er svo sannarlega eftir því, hér eru 20 tjúlluð plaköt.
Hér að neðan má svo sjá hvaðan hvert og eitt er…
Fallegt plakat eftir Veroniku Gorbacova (grafískur hönnuður LHÍ), fæst í gegnum facebook síðu hennar Apóchrosi.
Eftirprentun af upphaflegu teikningunni af Chanel varalitnum fyrir einkaleyfi frá 1952. Frá Bomedo sem fæst núna loksins hjá Hrím, sjá hér.
Veggspjald eftir Nynne Rosenvinge, frá Snúran.is, sjá hér.
101 Reykjavík frá Reykjavík Posters, fæst hjá t.d. Hrím, Epal og Snúrunni. Ég nældi mér einmitt í 220 Hafnarfjörð um daginn sem fæst t.d. í Litlu Hönnunarbúðinni í Hfj:)
Við sem erum enn að spara fyrir þessu húsgagni getum stytt biðina með þessu plakati, fæst hjá Intería.is.
Anatómía leturs eftir Sigríði Rún, fæst hjá Spark Design space (allir stafir), sjá hér.
Shhhh frá One must dash, fæst hjá Hjarn.is, sjá hér.
Reykjavík úr seríunni Urban space, fæst hjá Spark Design space, sjá hér.
Fallegt plakat eftir Veroniku Gorbacova (grafískur hönnuður LHÍ), fæst í gegnum facebook síðu hennar Apóchrosi.
Fúnkís hús eftir Kristinu Dam, fæst hjá Esja Dekor, sjá hér.
Plakat eftir hina dönsku Kristinu Krogh, fæst hjá Hrím, sjá hér.
Vatnslitamynd eftir eftir sænsku listakonuna Magdalenu Tyboni, fæst hjá Intería.is, sjá hér.
Skeggjaði maðurinn frá Paper Collective, fæst hjá Epal.is, sjá hér.
Veggspjald eftir listakonuna Jenny Liz Rome. Fæst hjá Intería.is, sjá hér.
The kids are all right , -and so are we. Frá Petit.is, sjá hér.
Ballerínuskór frá Lovedales studio, frá Petit.is, sjá hér.
Enn ein einkaleyfisteikningin, byssa frá 1860 eftir Bomedo studio, fæst í Hrím, sjá hér.
Falleg strigamynd eftir Nynne Rosenvinge, fæst hjá Snúran.is, sjá hér.
Plakat eftir breska listamanninn Ruben Ireland, fæst hjá Reykjavík Butik, sjá hér.
Invisible frá Paper Collective, fæst hjá Epal.is, sjá hér.
Æðislegt plakat með koparfólíu eftir Kristinu Krogh. Fæst í Hrím, sjá hér.
Ég er nokkuð viss um að þið ættuð flest að geta fundið að minnsta kosti eitt plakat við ykkar hæfi í þessari samantekt. Vonandi kemur þetta sér vel fyrir þá sem eru í þeim hugleiðingum að fríska upp á heimilið. Ég tengdi einnig slóð við hvert plakat svo hægt er að versla það núna með einum smelli. Ég er eflaust að gleyma einhverjum gullmolum, en þá kemur bara önnur færsla bráðlega með enn fleiri plakötum! 20 tjúlluð plaköt, hvernig lýst ykkur á?
Skrifa Innlegg