Feed me skálin er í miklu uppáhaldi hjá mér og er núna væntanleg í fallegri svartri útgáfu. Skálin er eftir uppáhalds Önnu Þórunni mína, vöruhönnuð með meiru sem er einnig ein yndislegasta manneskja sem ég þekki sem leggur þessa stundina mjög hart að sér að vinna við draumastarfið sitt. Að hanna fallegar vörur sem henni er svo sannarlega að takast.
Núna spyr ég bara… má eiga tvær ♡ eina hvíta og eina svarta!
Þessi svarta er komin á óskalistann og fær að skreyta mitt næsta heimili – sem verður vonandi sem fyrst. Ég get líka ekki beðið eftir að hafa pláss fyrir Cowboy spegilinn minn frá Önnu Þórunni sem ég bíð spennt eftir að fái að njóta sín á þessu draumaheimili sem ég tala stundum um haha… segi ykkur betur frá því innan skamms. En svört Feed me skál er hinsvegar væntanleg eftir um 3 vikur – ég leyfi ykkur að fylgjast með.
Íslensk hönnun – já takk!
Skrifa Innlegg