fbpx

STÓRA SÓFAMÁLIÐ

Hönnun

Undanfarið hef ég verið að spá mikið í sófum, í fyrsta lagi því við þurfum að kaupa sófa fyrir bústaðinn góða sem við erum að taka í gegn, en einnig vegna þess að sófinn á heimilinu er orðin örlítið þreyttur og þarfnast hvíldar. Ég og mamma höfum verið að spá í sófum fyrir bústaðinn en hennar draumasófi er Stocksund frá Ikea sem var þó uppseldur, en minn er þessi hér að neðan. Ghost sófinn sem hannaður er af Paola Navone fyrir ítalska Gervasoni. Hann er einfaldur í útliti, kósý og toppurinn er sá að auðvelt er að skipta um áklæði á honum og gjörbreyta þannig rýminu.

1ced7e1fb05553e80fbc3701a33178fd

Þessar myndir eru allar frá heimili hennar Anniku Von Holdt sem er danskur rithöfundur og þvílík smekkdama. Hún heldur einnig úti gífurlega vinsælum instagram reikning sem ég mæli með. 

Bleikur, grár, blár eða hvítur? Þvílíkur draumasófi ekki satt! Fyrir áhugasama þá er Módern með umboðið fyrir Gervasoni.

Ég vil endilega heyra frá ykkur hvar flottir sófar fást – ég er einnig mjög hrifin af Söderhamn frá Ikea sem ég hef áður bloggað um. Klassískur, stílhreinn og töff. Það fer að minnsta kosti að koma tími á sófaskipti, ég hef nú þegar fjarlægt sófapúðana úr mínum því þeir voru orðnir of sjúskaðir og ég fyllti í staðinn sófann af skrautpúðunum mínum sem er mögulega ekki besta lausnin.

svartahvitu-snapp2-1

IKEA ART EVENT 2017: VELDU ÞÉR LISTAVERK AÐ EIGIN VALI

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

6 Skilaboð

  1. Áslaug

    17. March 2017

    Klárlega að kaupa meiri kósý sófa í bústaðinn – Söderhamn er held ég engan vegin nógu djúsí í það :)

    • Svart á Hvítu

      17. March 2017

      Já klárlega meira kósý þangað haha, var að hugsa Söderhamn í mína stofu:)

  2. Kristín Rut

    17. March 2017

    Módern er með Gervasoni? Á Ghost sófa og elska hann!

    • Svart á Hvítu

      17. March 2017

      Takk, ég uppfæri færsluna:) Hef ekki séð sófann hjá þeim!

  3. Lilja Dögg

    17. March 2017

    Verð að benda þér á bloggið hjá systrum og mökum, en þau tóku sumarbústað í gegn fyrir ekki svo löngu síðan og föndruðu eitt stykki svaka djúsí sófa! Kíktu á það ?