Ein af mínum uppáhalds verslunum Snúran stækkaði á dögunum og opnaði fallegt sýningarrými á efri hæð verslunarinnar í Ármúlanum. Þar má finna úrval af fallegum húsgögnum í bland við smávöru, hönnun ásamt glæsilegri listasýningu á verkum Kristins Más Pálmasonar sem ég held persónulega mikið upp á. Um er að ræða sölusýningu á stærri listaverkum ásamt tveimur minni eftirprentunum.
Ég mæli svo sannarlega með heimsókn að skoða bæði fallega hönnun og list – leyfum myndunum að tala sínu máli ♡
Til hamingju Snúran með vel lukkaða stækkun á fallegu versluninni ykkar!
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg