Ef það vill svo skemmtilega til að þið séuð stödd í Kaupmannahöfn um helgina þá mæli ég með að kíkja á hönnunarsýninguna Blickfang. Íslenska hönnunarfyrirtækið Scintilla er einmitt að sýna vörurnar sínar þar um helgina en fyrir áhugasama þá eru þau staðsett á bás 1.23.
Það hefur eflaust ekki farið framhjá ykkur dálæti mitt á þessum vörum, svo ég vona svo sannarlega að þau nái að heilla gesti sýningarinnar svo fleiri fái að njóta:)
Blickfang sýningin fer fram í Øksnehallen á Vesterbro þann 15. og 16.nóvember frá kl. 10-18.
:)
Skrifa Innlegg