fbpx

ÓSKALISTINN: VILAC SPARKBÍLL

BarnaherbergiÓskalistinn

Það er ekki oft sem að leikfang situr á óskalistanum mínum, en ég vil þó reyndar meina að þetta sé á óskalistanum hans Bjarts. Vilac sparkbíllinn er eitt fallegasta leikfang sem ég hef séð og ég var aldeilis komin með augastað á honum áður en að litli kom í heiminn og ég veit að pabbinn er líka mjög spenntur fyrir þessum bíl. Bíllinn er nefnilega svo miklu meira en bara leikfang því hann er í leiðinni fallegt heimilispunt og það er ekki oft sem það er hægt að segja um leikföng.

a2032f139b0b3c9fafb354f096d13141

Bíllinn kemur frá franska fyrirtækinu Vilac sem stofnað var árið 1911.

06ef6a51db193dcffea813fead580029-1

06fe9db8a41d6bd7e1fe831ffec055a7

Elegant & fallegt gæðaleikfang.

Fyrir áhugasama þá er vefverslunin I am happy.is söluaðili Vilac á Íslandi, en þau fögnuðu einmitt 2ja ára afmæli í dag!

Talandi um afmæli, mér tókst í dag að ákveða vinning í afmælisgjafaleik bloggsins, þið eruð eftir að tryllast úr spenningi, ég þarf bara að ganga frá nokkrum lausum endum og þá keyrum við hann í gang!

Eigið góða helgi:)

Fylgstu endilega með Svart á hvítu á facebook -hér 

AÐVENTUKRANSALEIKUR HRÍM & TRENDNET

Skrifa Innlegg