fbpx

PROJECT BARNAHERBERGI

BarnaherbergiDIY

Nýlega tók ég þá ákvörðun að færa rúm sonarins aftur inn í svefnherbergið okkar en hann hafði sofið í sínu herbergi í nokkra mánuði. Það eru svosem nokkrar ástæður fyrir því en ég get a.m.k. sagt ykkur það að það sofa allir betur núna og eru úthvíldir á morgnanna. Hinsvegar er herbergið hans dálítið tómlegt þegar rúmið vantar og þá er tilvalið að nýta tækifærið og bretta upp á ermarnar og útbúa frábært leikherbergi í staðinn. Það eru til óteljandi hugmyndir og æskuminningar sem hlaðast upp í höfðinu þegar kemur að því að velja hvað skuli gera við þetta aukna pláss. Ein tillagan er sú að útbúa einhverskonar leik eða kósý horn í herberginu, myndirnar hér að neðan gefa fullt af góðum hugmyndum!

Allar myndirnar eru frá Pinterest síðu Svart á hvítu, en þar er ég sérstaklega dugleg að pinna hugmyndir fyrir barnaherbergi. Vonandi gefa þessar myndir ykkur góðar hugmyndir! Er einhver sérstök sem stendur uppúr?

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.4211

VÆNTANLEGT FRÁ PYROPET

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. María Rut Dýrfjörð

    19. October 2015

    Hér er Indíánatjald í bígerð fyrir dæturnar (þriggja og eins árs). Allt hráefni tilbúið: hrífusköft, þykkt léreft og snið. Stefni á að gera svona hátt tjald eins og á myndinni þar sem dýrahöfuðin eru fyrir ofan kojuna. PS: flottar myndir, er með keimlíkt borð á pinterest sjálf :)

    • Svart á Hvítu

      19. October 2015

      Við erum greinilega báðar miklar smekkkonur;)
      Ætli tjaldið verði ekki fyrir valinu, held það sé auðveldasta valið.. nema ég ákveði að fá manninn til að smíða virki eins og á einni myndinni haha:)

  2. Heida

    19. October 2015

    Herbergið með hundaveggfóðrinu, smart,glaðlegt og skemmtilegt!

    • Svart á Hvítu

      19. October 2015

      Sammála, það er ekkert smá mikið að gerast þar inni, eflaust mikið stuð fyrir barn að eiga slíkt herbergi:)