fbpx

ÓSKALISTINN ÞESSA STUNDINA

ÓskalistinnPersónulegt

Þrátt fyrir að vera í smá kaupbanni þessa dagana þá má alveg íhuga hitt og þetta sem vantar fyrir heimilið. Ég hef ekki ennþá ákveðið hversu lengi þetta kaupbann muni standa, en þar sem að ég fékk ýmsar fallegar gjafir frá Ameríku í dag (systir mín var að koma heim) ásamt því að hafa fjárfest loksins í nýjum gleraugum þá þyrfti það að standa a.m.k. út mánuðinn!

Það sem hefur setið lengi á óskalistanum eru Dots hankarnir frá Muuto, ég er þó ekki viss um hvort mig langi bara í eitt stykki eða nokkra til að hafa saman í smá þyrpingu. 37ded4233835bcca7b58bb593198935bb3597bf6def5f044c72af792e363a83c cf0a5c0ec032593ab78014bf9cf11075

Tölusnagarnir frá HK living eru þó að veita Dots snögunum harða samkeppni, þeir eru líka á mjög fínu verði, svo það hefur mikið að segja. Fást á Snúran.is…

ba5d5d8b35ce9c84dd1626210baa336a

Screen Shot 2014-05-13 at 11.06.05 PM

9c4f19f0de6852f93fbcc3b698574a1b

Og síðast en ekki síst þá langar mig mikið til þess að eignast svona fína ljósaseríu.

Ég ætla svo að deila með ykkur á morgun fínu Ameríkukaupunum sem ég er svo hrikalega sátt með!

:)

DIY MEÐ STEYPU AÐ VOPNI

Skrifa Innlegg

16 Skilaboð

  1. Àgústa

    13. May 2014

    Hæ hæ
    Veistu hvar er hægt að fá svona seríu?

  2. Svana við þurfum að vakta Húsasmiðjuna þeir fá svona fallegar seríur fyrir jólin – þær voru uppseldar þegar ég fór um miðjan des – alltof sein – en ég ætla ekki að missa af þeim næst! – þær eru reyndar með aðeins minni perum en samt svona stærri en þessar týpísku og kringlóttar:)

  3. Vala

    14. May 2014

    Fékk samskonar útiljósa seríu með 10 perum í Glóey!

  4. Bára

    14. May 2014

    Jihh hvað ég bíð spennt eftir USA færslu. Þarf mjög nauðsynlega að komast í þessa snilldar búð sem þú bloggaðir um um daginn í næstu USA ferð minni :)

  5. Guðrún Vald.

    14. May 2014

    Er þetta ekki serían frá House Doctor? Það fæst mjög svipuð sería í Garðheimum líka.

  6. Sonja

    14. May 2014

    Þessi fallega sería var til í IKEA fyrir tveimur árum … missti af henni :(

  7. Fríða

    14. May 2014

    Það fæst svona sería í bauhaus ! Reyndar með lituðum perum en ekkert mál að skipta þeim út fyrir glærar. Kostaði 4990 :)

  8. Rakel

    14. May 2014

    Fáðu þér Dots og skelltu svo tölusnögunum í barnaherbergið! Það ætla ég allavega að gera ;)

  9. Lilja Kristjáns

    14. May 2014

    Hvar fást dots á Íslandi?