Það er alltaf jafn gaman að sjá heimili fólks sem er óhrætt við að nota liti og gera það á svona smekklegan hátt. Hér búa Carolina Lynn og Patrik Gustavsson ásamt þremur börnum sínum í Danmörku. Caroline hefur ekki bara málað nokkra veggi í fallegum litum heldur var eldhúsgólfið málað himinblátt á einum góðum degi og afmarkar eldhúskrókinn á svona skemmtiegan hátt.
Svo er eitthvað skemmtilegt við þessa risagrein í vasanum sem búið er að skreyta með ljósaseríu, það er eflaust mjög kósý að fara í bað þarna með slökkt ljósin:)
Myndir: Iben Kaufmann fyrir Femina.
Skrifa Innlegg