fbpx

NÝTT STOFUSTÁSS

HeimiliPersónulegt

IMG_0745

Ég fann þessa fínu seríu um daginn í plöntuferðinni minni í Bauhaus, mér finnst hún setja dálítið skemmtilega stemmingu í stofuna. Hún kostaði alls ekki mikið, ég var með eina frá House Doctor á óskalistanum en þessi kostaði bara lítið brot af því sem hin kostar. -Gleymna ég man ekki nkl. verðið en ég myndi slumpa á u.þ.b. 5.000 kr.

Eins og þið sjáið þá eru ennþá engar myndir komnar upp á vegg en það hlýtur að koma á endanum!

Fín kaup held ég nú bara:)

NUDE MAGAZINE: THE HOT SUMMER ISSUE

Skrifa Innlegg

13 Skilaboð

  1. Anonymous

    28. July 2014

    Hæhæ. Ein spurning. Keypti mér svona Scintilla plakat eins og þú átt. Er í vandræðum með að finna ramma utan um það, má ég spyrja hvar þú fékkst þinn?

    • Svart á Hvítu

      29. July 2014

      Minn er nokkra ára gamall úr Ikea en er samt ekki rétta stærðin heldur því miður. Það var stafrófsplakat í rammanum þegar ég keypti hann, s.s. ekki ætlaður í þetta. Ég er alltaf á leiðinni í innrömmum með mitt plakat:)

  2. Sæunn Pétursdóttir

    28. July 2014

    Ótrúlega smart horn. Serían passar ótrúlega vel þarna. Ég þarf greinilega að fara í Bauhaus :)

  3. Fatou

    29. July 2014

    Love it!

  4. Begga

    29. July 2014

    oh ég er búin að slefa yfir housedoctor seríunni svo lengi en fannst hún of dýr. Beint í Bauhaus!
    ps. fallegt heimili!!!

  5. Helga

    6. September 2015

    Er góð birta sem kemur af þessum perum? Væri hægt að nota þetta sem ljós í kringum spegil?

  6. Karólína

    11. April 2016

    Ég á einmitt eins seríu en ég keypti hana í Lagerhaus, góð kaup! Vandinn er hún er enn í kassanum haha örugglega 2 árum seinna. Er að velta því fyrir mér hvernig þú festir hana upp?

  7. Hrafnhildur

    14. March 2017

    Hæ, mjög flott :) eru perurnar hvítar?