fbpx

NÝTT: STAFATÖFLUR

Hönnun

Ég er mjög heit fyrir stafatöflum þessa dagana, í nokkrar vikur hef ég verið á leiðinni að kaupa mér þessa hér en í dag þegar ég ætlaði loksins að ganga frá kaupunum þá rakst ég á spennandi nýjung frá Design Letters. Hrikalega flotta stafatöflu sem er væntanleg í tveimur stærðum og nokkrum litum! Ég ætla því að bíða örlítið með þessi kaup þar til ég fæ að sjá þetta fínerí aðeins betur – en mikið sem þessi stafatafla lofar góðu. Design Letters alltaf með puttann á púlsinum!

screen-shot-2017-01-23-at-14-29-06

screen-shot-2017-01-23-at-14-37-23

Það er annars svona dagur í dag hjá mér – ég er að ganga frá nokkrum hlutum sem ég vil láta senda á vinkonur mínar áður en ég fer í Köben – Stokkhólm leiðangurinn minn, og ég bilast yfir tveimur hlutum sem ég pantaði mér í morgun!

svartahvitu-snapp2-1

#fyrirbirnu

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Anna

    24. January 2017

    Granit í Stokkhólmi selur ódýrar og flottar stafatöflur, svartar! :)

    • Svart á Hvítu

      24. January 2017

      Snilld að heyra! Ætla einmitt að kíkja þangað eftir nokkra daga:)