fbpx

NÝTT : IKEA

HugmyndirIkea

Ég veit… enn ein Ikea færslan,en ég bara verð að sýna ykkur þessa snilld. Ég veit að Ikea vill þó að vörurnar sínar standi bara algjörlega fyrir sínu, sem það gerir, og það þurfi engar DIY-útfærslur og sérhannaðar lappir undir húsgögnin. En ég fékk alveg kitl í mallann þegar ég sá þessar skemmtilegu útfærslur á Ikea húsgögnunum frá sænsku hönnunarfyrirtæki sem heitir Superfront. Þeir eru búnir að hanna skápahurðir, toppa, lappir og höldur sem passa fyrir Faktum eldhús, Besta skenka, Pax fataskápa og bráðlega á nýju Metod eldhúsin.

Hversu falleg eru þessi húsgögn!? Bleiki skenkurinn er algjört nammi og eigum við eitthvað að ræða höldurnar? Þessar koparlituðu löngu mega sko mæta á eldhúsinnréttinguna mína og búa þar að eilífu.

Eins og er sendir fyrirtækið til Svíþjóðar, Noregs, Danmörku, Finnlands, Þýskalands, Belgíu, Hollands og Bretlands… og ekki til Íslands.

En það er alltaf hægt að finna leið:)

Endilega skoðið heimasíðunna þeirra betur HÉR.

HEIMAPÆLINGAR

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Thorunn

    31. July 2013

    ómæ- er einmitt að fá mér nyjan fataskáp- verð að fá svona töff höldur!!!

  2. Helga

    14. September 2013

    Besta sidebords… veistu hvert vörumerkið er á íslensku ikea síðunni? Langar sjúkt í þennan skenk!