fbpx

NÝTT FRÁ ROYAL COPENHAGEN : BLOMST

HönnunKlassík

Royal Copenhagen heimsfrumsýnir nú nýja línu af borðbúnaði sem ber heitið Blomst. Royal Copenhagen er gamalgróin dönsk postulínsverksmiðja sem stofnuð var árið 1775 og er borðbúnaður þeirra samofinn dönsku samfélagi og hafa heilu kynslóðirnar alist upp með “Blue Fluted” matarstelli sem þykir mjög eftirsótt í dag.

Það eru mikil tíðindi þegar svona klassískt og rótgróið hönnunarfyrirtæki kynnir nýja vörulínu, og var Blomst um fimm ár í vinnslu. Það var hollenski listamaðurinn Wouter Dolk sem túlkaði blómamynstrið í nýrri mynd en Blue Flower var annað mynstrið sem Royal Copenhagen kynnti árið 1779 og var það handmálað blómaskreytt stell innblásið af dönskum blómagörðum. Mikil nákvæmni var lögð í samsetningu forms, mynsturs, staðsetningu og stærð og er útkoman nútímaleg og klassísk í senn. Mikið afskaplega er þetta fallegt mynstur…

“With blomst, we have created something beautiful and meaningful.”

Wouter Dolk – Artist

Myndir via Royal Copenhagen

YFIRHÖNNUÐUR ARTEK BÝR SMART -

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Guðrún

    27. April 2018

    Elska þetta stell !

    Finnst þessi nýja lína hjá þeim æðisleg bæði hvenrig þeir nota klassíska bláa litinn en líka það að notast við mismuanndi blóm sem svo hægt er að safna líkt og þeir gera í Flora – stellinu. Líka einhver smá retró fílingur yfir hönnuninn á t.d. tekatlinum minnir mig af einhvejrum ástæðum á sumarbústað