Ultima Thule er mín uppáhalds lína frá Iittala, svo dásamlega falleg og klassísk. Glösin úr línunni eru með því fyrsta sem ég keypti mér sjálf í búið í þáverandi uppáhalds búðinni minni Saltfélaginu og ég nota glösin daglega, ég kýs nefnilega að eiga ekki sparistell heldur nota það fallegasta að hverju sinni á hinum venjulega degi, líka á mygluðum mánudagsmorgnum og ég lofa ykkur því að það gerir daginn ögn betri. Þó það sé Iittala eða Ikea, ilmvatnið eða spariskórnir – við eigum að nota hlutina okkar en ekki geyma í skápum fyrir betri tilefni. Tilefnið á að vera dagurinn í dag.
Ultima Thule línan var hönnuð árið 1968 af glerlistamanninum Tapio Wirkkala sem sótti innblástur til Lapplands en línan vísar í bráðinn klaka. Ultima Thule línan er í dag ein þekktasta vörulínan frá finnska hönnunarrisanum Iittala og þið kannist líklega flest við hana og eigið jafnvel nokkra hluti. Ultima Thule er einstök fyrir þær sakir að á baki hennar liggja meira en þúsundir klukkustunda sem fóru í að fullkomna glerblásturaðferðina til að ná fram þessari sérstöku áferð sem einkennir línuna og minnir á bráðinn klaka. Ultima Thule línan hefur stækkað töluvert og árið 2015 í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Wirkkala bættust við diskar sem sitja hátt á mínum óskalista og ásamt þeim bættust einnig við lítil freyðivínsglös ásamt könnu.
Núna voru hinsvegar að koma út fallegir sprittkertastjakar sem ég veit að munu slá í gegn, einfaldlega klassísk hönnun sem stenst alla tískustrauma. Mér skylst þó að eins og er fáist þeir aðeins í Iittala versluninni, en frá 11. nóvember munu þeir fást hjá öllum söluaðilum Iittala.
Fallegir ekki satt? Hér að neðan tók ég saman nokkrar myndir frá Instagram síðu Iittala sem ég mæli með að fylgja ef þið hafið áhuga á að sjá fallegar myndir í ykkar fréttaveitu, sjá meira hér.
Skrifa Innlegg