Ein af mínum uppáhalds íslensku hönnuðum er Hlín Reykdal – hún frumsýndi fyrir stuttu síðan á Hönnunarmars nýja og glæsilega skartgripalínu ásamt ljósmyndum eftir Önnu Maggý sem eru svo fallegar.
Skartið er allt handgert á vinnustofu Hlínar á Granda og er því hver gripur einstakur, Crystal Clear línan er gerð úr kristöllum og náttúrlegum steinum og er útkoman glitrandi og ó svo falleg.
Það styttist í allar útskriftir og dásamlega brúðkaupstímabilið einnig að hefjast og því er tilvalið að kynna sér þessa fallegu íslensku skartgripahönnun sem ég er svo skotin í ♡
Ljósmyndari : Anna Maggý
Ég gæti vel hugsað mér að eiga svona fallegt skart ♡ Sjá alla línuna hér.
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg