fbpx

NÝ VERSLUN: MY CONCEPT STORE

BúðirFyrir heimilið

Á miðbæjarrölti mínu síðustu daga í kringum Hönnunarmars komst ég ekki hjá því að rekast á nýopnaða My concept store verslun á Laugaveginum. Upphaflega fylgdist ég spennt með framkvæmdunum sem ég gerði aldrei ráð fyrir að gætu tekið enda fyrir Hönnunarmars, en jú það rétt tókst fyrir horn og opnaði búðin á laugardaginn var.

Það fyrsta sem ég rak augun í var að sjálfsögðu fronturinn á húsinu, þarna hafa ýmsar verslanir verið þar sem lítið var hugsað um heildarumgjörðina. En Heiða og Eiríkur eigendur verslunarinnar eru fagurkerar miklir og létu mála allan frontinn í fallegum dökkum lit ásamt því að setja upp fulningar sem gefa versluninni dálítinn Parísarbrag að mínu mati.

IMG_3743IMG_3760

Mér leið dálítið eins og ég væri í útlöndum þarna inni, stemmingin er ólík því sem við erum vön í verslunum hér heima, þægileg stemmingstónlist og fullt af vörum sem stilltar eru upp eins og hver og ein þeirra sé einstök…sem að margar þeirra eru reyndar:)

IMG_3749

Dökki liturinn teygir sig inn í verslunina þar sem veggir, loft og innréttingar eru einnig dökkmálaðar. Ljósmyndin eftir Sissu sem hangir á veggnum setur alveg punktinn.

IMG_3750IMG_3762 IMG_3769 IMG_3770

Allskyns fallegar ljósmyndabækur.

IMG_3771 IMG_3772

Þessir loftbelgir bræða mig, einn svona í barnaherbergið takk:)

IMG_3745 IMG_3776 IMG_3777 IMG_3783IMG_3754

Prentaraskúffur (að öllum líkindum kallað eitthvað annað), en engu að síður ótrúlega fallegt húsgagn og þetta eintak eflaust nokkurra tuga ára!

IMG_3785

Þessi hátalari er kominn á óskalistann, þvílík fegurð.

Ég mæli með að kíkja á Laugaveginn á þessa fegurð, þvílík lyftistöng fyrir bæjarlífið sem svona fallegar verslanir geta verið. Og mikið verð ég ánægð þegar verslunareigendur sýna ábyrgð og leggja sitt að mörkum til að bæta götuna með því að hugsa ekki aðeins um innanhússhönnunina heldur líka um útlitið utan frá.

Fleiri svona “Parísar” búðir í miðbæinn takk!

P.s. til að koma í veg fyrir misskilning þá verður gamla My concept store verslunin ennþá opin við Nýbýlaveg, ég kannaði það einmitt:)

-Svana

HÖNNUNARMARS: JÖKLA MATARSTELL

Skrifa Innlegg

11 Skilaboð

  1. Kristbjörg Tinna

    1. April 2014

    Ég ELSKA þessa búð.. var alveg yndislegt að rölta þarna inni. Og já, hátalarinn Svana er rugl fallegur!!

  2. Sandra Karls

    1. April 2014

    ohhh… þetta er fallegasta búðin í bænum! alveg dásamleg og yndisleg þjónustan í þokkabót.

  3. Fatou

    1. April 2014

    Ég hlakka mikið til að kíkja í heimsókn – allt að gerast á Laugaveginum !

  4. Björk

    1. April 2014

    Váá, loftbelgurinn er æði !!!
    Þori ég að spyrja hvort að þú vitir hvað slíkur kostar ? :)

    • Svart á Hvítu

      1. April 2014

      Á heimasíðunni þeirra stendur frá 3.900 kr… en mig minnir að þessir stærstu séu frekar dýrir.
      -Svana:)

      • Björk

        1. April 2014

        Takk fyrir svarið :)
        Kíkit á síðunna og þessi stóri kostar einmitt 43.000kr ….en fallegur er hann samt :)

  5. Hildur Ragnarsdóttir

    1. April 2014

    mikið rosalega er þetta FALLEG búð, kíkti inn í hana í gær og varð alveg ástfangin!

    xx

  6. Anonymous

    2. April 2014

    Hæ Svana.

    Æðisleg búð!! Hlakka til að fara að skoða.
    Var hátalarinn verðmerktur? Hann er líka kominn á óskalistann hjá mér.

    • Svart á Hvítu

      3. April 2014

      Hann var óverðmerktur.. en það voru tvær stærðir, mig minnir að eigandinn hafi nefnt einhvern 70þús kall allavega? Ég er svo léleg að muna svona:) En sjúúúklega flottur hátalari!