fbpx

NORTHERN DELIGHTS

Fyrir heimiliðÓskalistinn

Bókin hennar Emmu Fexeus er loksins komin til landsins, en Emma er eins og flestir vita einn þekktasti bloggari í Skandinavíu og gaf Gestalten nýverið út hennar fyrstu bók þar sem sýnd eru ýmis norræn heimili og hönnun. Bókin er einstaklega falleg og eiguleg, en ég eyddi einmitt öllum deginum í að fletta henni fram og tilbaka í vinnunni í dag.

 Til að byrja með fæst hún í Spark design space á Klapparstíg en ég veit einnig til þess að hún er væntanleg í Epal fyrir áhugasama.
Vonandi verður helgin ykkar ljúf og að ykkur takist að láta kosningaráróður sem vind um eyru þjóta og kjósið það sem ykkur þykir rétt:)

SUMARLEG LJÓS

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Kristbjörg Tinna

    27. April 2013

    Mig langar ofsalega í bókina! OFSALEGA :)

  2. Dagný Bjorg

    28. April 2013

    Sá hana líka í Eymundsson fyrir ca. 2-3 vikum síðan ;) Klárlega á bóka-óskalistanum