Ég er ennþá netlaus og hef gert fjölmargar tilraunir að blogga í símanum sem virðist ekki ætla að ganga upp. Ég náði þó að stelast í smá nettengingu og ætla að deila með ykkur þessari mynd sem mér þykir vera mjög falleg.
Útsýnið á nýja heimilinu er ekki af verri endanum, við horfum út á sjó, upp á Hamar og alla leið upp á Ásland (fyrir hafnfirðinga). Best þykir mér þó að horfa yfir kirkjutröppurnar og hef ég þegar fylgst með tveimur brúðkaupum, en það er fátt fallegra en brúðkaup:)
Þessi er líka mjög sáttur með útsýnið!
Skrifa Innlegg