fbpx

MÆLI MEÐ: WHO WHAT WEAR

UmfjöllunUppáhalds

Þrátt fyrir að halda úti innanhússhönnunarbloggi þá á ég nú líka mín uppáhaldstískublogg og get gleymt mér tímunum saman að skrolla í gegnum nokkur slík. Ég gleymi þó oft hvaða síðum mér finnst gaman að fylgjast með og þá kemur facebook sterkt inn, síðan Who What Wear er duglegt að minna mig á sig á facebook og því skoða ég flestar þeirra færslur og mikið sem þetta er nú skemmtileg síða!

Ég held sérstaklega upp á flokkinn “How to”, en þar eru greinar eins og t.d. hvaða “styletips” þarf að vera búið að mastera fyrir þrítugsaldurinn sem er eitthvað sem ég þarf að fara að huga að;)main-1.original.466x530

“By age 30 you should have mastered… how to care for your leather properly, so you can give that vintage Chanel purse to your daughter.”

main-2.original.466x530

By age 30 you should have mastered… how to dress for comfort, without looking like a slob.”

main.original.466x530

By age 30 you should have mastered… how to shop your own closet, because you don’t really need another blazer.”

Ég mæli með þessari síðu:)

P.s. Ég er annars flutt -loksins! Og fer í það að smella af nokkrum myndum um leið og allir hlutirnir eru komnir á sinn stað og nettengingin mætir á svæðið:)

Heyrumst á morgun!

FÍNT Á 40 FERMETRUM

Skrifa Innlegg