Hafið þið íhugað hversu fallegt þetta ljós er?
Zettel’z 5 eftir meistara Ingo Maurer, konung ljósahönnunar.
Hannað árið 1997 og kemur það með 31 prentuðum og 49 tómum japönskum pappírsmiðum. Hægt er að halda áfram með rómantíska þemað og bæta við nokkrum ástarljóðum! Þetta ljós er algjör draumur yfir borðstofuborðið t.d.
Ég veit það eru skiptar skoðanir með þetta ljós, en mér finnst það vera ótrúlega fallegt.
Þess má geta að miðinn á efri myndinni af einhverskonar fisk og hjarta hefur verið bætt við af eiganda haha:)
Skrifa Innlegg