Heimilið hennar Siggu Elefsen smekkpíu með meiru er algjört augnakonfekt. Ég man svo vel í fyrsta sinn þegar ég kom þangað inn að ég hafði sjaldan séð jafn líflegt heimili en þar er að finna nóg af litum og fallegum hlutum. Algjörlega æðislegt heimili og svo er heimilisfólkið heldur ekki af verri endanum, Siggu kynntist ég upphaflega í gegnum bumbuhóp en svo komumst við að því að það eru bara nokkur hús á milli okkar hér í Hafnarfirðinum, stelpan hennar hún Birta er líka bara nokkrum vikum eldri en Bjartur minn svo við eigum heilmikið sameiginlegt annað en áhuga okkar á hönnun og heimilum. Heimilið hennar er þó töluvert litríkara en mitt og ég mætti alveg taka niður nokkra punkta frá Siggu og koma heimlinu mínu í sumargírinn.
Litir spila stórt hlutverk á þessu heimili sem gerir það svona hrikalega djúsí. Úlfurinn í miðjunni er hannaður af Siggu Möggu sem rekur Litlu Hönnunarbúðina á Strandgötunni í Hfj, ég er alltaf á leiðinni að segja ykkur betur frá þeirri æðislegu búð en ég mæli með að kíkja á hana. Verkið lengst til vinstri er eftir hafnfirðinginn Ingvar Björn og lengst til hægri er Scintilla, ég og Sigga vorum einmitt einar af 11 heppnum sem nældum okkur í bleika verkið á sínum tíma sem nú er ófáanlegt.
Þegar maður er í vafa hvað skuli velja þá er um að gera að prófa fleiri týpur:) Hér má sjá bleika útgáfu af úlfinum, ég er mjög hrifin af hvernig myndunum er raðað en sófinn er frekar stór og veggurinn líka svo hann þolir vel að bera svona margar stórar myndir. Fyrir áhugasama þá er hægt að skoða plakötin hennar Siggu Möggu á vefsíðu Litlu Hönnunarbúðarinnar hér. Litlu myndirnar á veggnum eru frá Ilva.
Talandi um líflegt heimili? Þessi veggur er ævintýralega fallegur, en þetta er vegglímmiði sem Sigga fékk í Bauhaus fyrir nokkru síðan og límdi á vegginn í fjórum pörtum. Það er svo æðisleg hugmynd að veggfóðra einn vegg með svona líflegri mynd, eða þá að veggfóðra alla veggi í litlu rými t.d. á gestabaðherbergi það kæmi ofsalega vel út! Svanurinn er í pössun hjá þeim en eigandinn má teljast heppin ef hún fær hann aftur tilbaka, svona gersemi myndi ég aldrei skila:)
Svo er ein eldri mynd af stofunni sem mér finnst líka vera svo mikið æði, nóg af bleikum og djúsí litum. Stofuborðið hannaði og smíðaði Sigga sjálf og veifurnar í loftinu setja puntkinn yfir i-ið á þessu litríka heimili, þessi mynd var tekin í kringum skírnarveisluna hjá dótturinni sem útskýrir skreytingarnar:)
Eftir að horfa á þessar myndir langar mig samstundis að hrúga litríkum púðum á sófann og bæta við litríkum myndum á veggina, maður kemst bara í gott skap að skoða svona heimili! Eruð þið ekki sammála?
Skrifa Innlegg