Listval stendur fyrir uppboði á listaverkum til styrktar Úkraínu. Hægt er að sjá öll verkin í Listval Hörpu en uppboðið sjálft fer fram á heimasíðunni uppbod.listval.is. Uppboðið stendur til kl. 18.00 fimmtudaginn 31. mars og rennur allur ágóði óskiptur til neyðarsöfnunar Þroskahjálpar fyrir fatlað fólk í Úkraínu.
Myndir // Listval
Ég hvet ykkur til að skoða betur þetta fallega verkefni en hér er á ferð einstakt tækifæri til að eignast íslenska list og styrkja á sama tíma þarft málefni ♡
Skrifa Innlegg