Eitt fullkomnasta sófaborðið að mínu mati er Tavolo con Ruote / Borð á hjólum, sem hin ítalska Gae Aulenti (1927 – 2012) hannaði árið 1980. Hún er heimsþekktur hönnuður og arkitekt og hannaði hún m.a. fyrir Knoll, Kartell og Artemide, hún er þó þekktust fyrir hönnun sína á Musée d’Orsay safninu í París sem áður gengdi hlutverki lestarstöðvar.
Það eru fá borð sem skora jafn hátt á óskalistanum mínum, þetta er hið fullkomna borð til að stilla upp fallegum bókum og öðru skrauti. Ég leyfi mér að efast smá um að þetta sé mjög barnvænt borð, þó svo að glerplatan sé gerð úr mjög þykku og öruggu gleri, þá sé ég fyrir mér að þurfa að pússa plötuna ansi oft!
Borðið hefur á undanförnum árum orðið æ vinsælla sem “heimaföndur”, en upprunalega borðið er hægt að kaupa á um 200.000 kr í gegnum MoMa safnið í New York þar sem það er partur af þeirra varanlega safni.
Mynd via Lotta Agaton
Efsta myndin er ekki af upprunalega borðinu en þessi hér beint fyrir ofan er það. Þá er það spurningin hvort þetta sé nógu hentugt borð með einn lítinn pjakk á heimilinu, eða hvort það sé mögulega hægt að læsa dekkjunum svo það fari að minnsta kosti ekki af stað. Svo er það bara daglega rútínan að færa puntið af og aftur á borðið, breytir litlu hvort það sé glerborð eða tréborð, ég er hvort sem er að því alla daga, mikið stuð.
Ég er alveg búin að selja sjálfri mér þessa hugmynd, næst er að fá álit hjá sambýlismanninum. Ég spyr allavega svona uppá að leyfa honum að vera með, ég er samt búin að senda póst á glerfyrirtækið um að fá tilboð…:)
Skrifa Innlegg