fbpx

INNLIT: @INGRIDPALL

Heimili

Eins og ég kom inn á í færslunni hér að framan þá rakst ég á svo fallegt instagram á smá netvafri í kvöld. Bjartur er sofnaður, Andrés er í bíó og þá er fullkominn tími fyrir mig til að sitja uppi í rúmi með tölvuna í fanginu og vafra um netið í leit af innblæstri fyrir heimilið. Þegar maður eyðir orðið svona miklum tíma heima hjá sér ( jú orlofið) þá fer maður enn meira að huga að heimilinu, svona ef það var hægt. Listinn lengist af hlutum sem manni “bráðvantar” og nokkrum sem hreinlega vantar í alvöru. Eins skemmtilegt og það er að uppgötva svona smekkkonur úti í heimi sem deila sama smekk og maður sjálfur, þá fylgir þessu jú alltaf löngunin að breyta og bæta við heimilið sitt sem er hreinlega ekkert alltaf svo jákvætt:)

Hin norska Ingrid Pallesen er smekkkonan að þessu sinni, hana má finna á instagram @ingridpall

Screen Shot 2014-11-08 at 11.34.49 PM

Screen Shot 2014-11-08 at 10.27.20 PM

Ingrid hefur augljóslega mikið dálæti á hönnunarklassík, PH Snowball ljósið er þó toppurinn á þessari mynd:)

Screen Shot 2014-11-08 at 10.27.45 PM Screen Shot 2014-11-08 at 11.39.17 PMScreen Shot 2014-11-08 at 10.28.53 PM

Nei sko, uppáhaldsrúmfötin mín:)

Screen Shot 2014-11-08 at 10.28.36 PM

String hillur og Menu veggkertastjakar.

Screen Shot 2014-11-08 at 10.28.10 PM Screen Shot 2014-11-08 at 10.27.32 PM

Sófahornið er huggulegt.

Screen Shot 2014-11-08 at 11.36.58 PM Screen Shot 2014-11-08 at 10.29.30 PM

Hér má sjá hvernig borðið leit út áður en sett var á það marmarafilma,

Screen Shot 2014-11-08 at 10.29.13 PM

Ég er ofsalega skotin í svarta Lyngby vasanum á stofuborðinu og gæti vel hugsað mér einn slíkann hingað heim, þá í hvítu:)

Screen Shot 2014-11-08 at 11.35.11 PM

Smekkkonur eins og Ingrid eru með Hay mottu sem baðmottu…

Screen Shot 2014-11-08 at 11.31.48 PM Screen Shot 2014-11-08 at 11.31.20 PM

Lyngby vasinn fær greinilega að flakka á milli staða á heimilinu:)

Screen Shot 2014-11-08 at 11.42.21 PM

Royal Copenhagen matarstell á þessu heimili en ekki hvað:)

Screen Shot 2014-11-08 at 11.38.13 PMScreen Shot 2014-11-08 at 11.40.14 PM

Ég varð að leyfa einni jólamynd að fylgja með frá því í fyrra, ég er nefnilega orðin svo spennt að fá jólatré í fyrsta skipti (það skal takast í ár) að það nánast ískrar í mér:)

Er ég nokkuð ein um það að vilja taka til-færa hluti-bæta og breyta til þegar ég sé innlit sem falla svona vel að mínum smekk?

DIY: MARMARABORÐ

Skrifa Innlegg

11 Skilaboð

  1. Daníel

    9. November 2014

    Vá! Snowball ljósið er gullfallegt.

    • Svart á Hvítu

      9. November 2014

      Það er algjör draumur… ef að ég ynni í lottó þá myndi ég splæsa:)

  2. Auður

    9. November 2014

    VÁ!

  3. Anna

    9. November 2014

    Æðisleg íbuð! Veistu hvar hægt er að fá “bast-fótpall” eins þann sem er á neðstu myndinni?

    • Svart á Hvítu

      9. November 2014

      Ég hef ekki rekist á akkúrat svona en mér dettur helst í hug að tékka á Heimili og hugmyndir eða Heimahúsið, kannski líka Ilva:)

      • Hrafnhildur ósk sigurðardóttir

        10. November 2014

        Svana mín veistu hvar hægt er að fá marmarafilmu hér á landi fyrir eldhúsborð td :)

        • Svart á Hvítu

          10. November 2014

          Hæhæ Hrafnhildur:) Ég veit að Merkistofan prentar svona filmur, líklega hægt að kaupa í metravís:) https://www.facebook.com/Merkistofan
          Svo hafa verið til marmarafilmur í Bauhaus en þær eru svo mjóar, myndu ekki ná í heilu lagi yfir borðplötu.

    • Hrund

      9. November 2014

      Þessi er úr Ikea ;)

        • Anna

          9. November 2014

          Takk – tékka á því :)