Ég vona að flest ykkar hafið nú þegar komist yfir eintak af árlega Ikea bæklingnum, ég var mjög spennt þegar ég fékk minn bækling, stærðarinnar viðhafnarútgáfu sem mun svo sannarlega ekki týnast hér á heimilinu! Samstundis var ég byrjuð að endurraða í huganum hér heima og nokkrir hlutir bættust á óskalistann:)
Ein uppáhaldsvefsíðan mín er Livet Hemma, en þeirri vefsíðu er haldið úti af Ikea. Þar má sjá stíliseraðar myndir með Ikea vörum og oft allskyns góðar hugmyndir. Þessar myndir fékk ég að láni þaðan.
Þessi motta hér að ofan er t.d. algjört æði!
Hvernig fannst ykkur bæklingurinn vera í ár?
Skrifa Innlegg