Ég pantaði mér þetta fína plakat rétt fyrir jólin en viðbrögðin frá mínum voru ekki alveg eins og ég hafði vonað, “hvaða barn er þetta” spurði hann mjög hneykslaður á að mér þætti þetta vera svona fínt. Plakatið er ljósmynd úr seríunni The birthday party eftir Vee Speers sem er heimsfrægur ljósmyndari frá Ástralíu og hefur myndaserían farið víða um netheima og þið kannist eflaust mörg hver við þessa ljósmynd.
Ég kann nefnilega vel að meta það að ég sé ekki alltaf ein með skoðanir á heimilinu en ég er svona oftast alráðandi í þessum efnum:) Því ætla ég að selja plakatið svo einhver fái nú að njóta þess, æj ég á líka hvort sem er of mörg plaköt.
Plakatið er 50×70 cm og selst á 7 þúsund kr eða hæstbjóðanda. Áhugasamir sendi mér póst á svartahvitu(hjá)trendnet.is.
-Svana
Skrifa Innlegg