Afmæli eiga hug minn allan þessa dagana, í dag á systir mín afmæli, um helgina áttu tvær bestu vinkonur mínar afmæli og á morgun á ég afmæli. Svo verð ég að viðurkenna að ég dett stundum í það að skoða barnaafmælishugmyndir á Pinterest en eins árs afmæli einkasonarins nálgast hratt. Þá er um að gera að huga að skemmtilegum partýskreytingum í tæka tíð því sumar þarf kannski að panta af netinu. Ég rakst á þessa geggjuðu sumarborðskreytingu og má til með að deila henni með ykkur, það er allt sumarið framundan og vonandi nóg af sól og blíðu, þá væri ekki slæmt að skella í eitt svona sumarpartý!
Myndir via Studio Diy
Mér finnst flott hvernig gasblöðrurnar eru látnar koma upp úr miðju borðinu og pálmalaufin og ananasinn setja alveg stemminguna! Til að vera extra smart á því þá að sjálfsögðu þarf kokteillinn að passa við litaþemað í partýinu en ekki hvað;) Svo er sérstaklega góð hugmynd að prenta út mynd og líma á blöðrurnar eins og var gert við pálmablöðrurnar, sjá leiðbeiningar -hér.
Skrifa Innlegg