fbpx

HUGMYNDIR FYRIR BARNAHERBERGIÐ

BarnaherbergiHugmyndir

Það styttist í flutninga + barnaherbergi svo ég held áfram að láta hugann reika í leit af flottum hugmyndum. Pinterest er mín hægri hönd þegar kemur að svona málum eins og ég hef bent á áður, en hægt er að fylgja mér á Pinterest -hér-

83ea9e3f71903749730c6c9c1850664f

Það er auðvelt að útfæra svona sætar hillur á vegginn með t.d. pappír eða efni sem klippt er niður.

61befaae1c78b8e63f15d0eb59d7dbcd

Krúttlegir pappírsdúskar sem skraut!


3057a375fe66a72a4952a39c3218ba81

Hringlaga hilla frá Ferm Living undir punt.

83472d1c6d78baecf720a91192eff3f9

Þessi mynd bræðir mig, myndaveggur með allskyns dýraungum.

c14452683bf480c17e10a26a8e8e6ebc

Krúttleg hús til að stilla upp fallegum hlutum í.

e6c5951baabe5b84e2cc682de43b6c7b

Flott safn af Bearbrick, ég gæti vel hugsað mér einn vel valinn í barnaherbergið. Og eigum við að ræða þennan live-size bamba?!

da2340ebc5f84f813b3740a1811ee1f0

Falleg myndarammauppröðun fyrir ofan rúmið.

78f3f0d92a6715e7662d31ca731678cd

Svo er ég orðin smá veik fyrir svona blómastöfum nýlega, mikið er maður væminn! En hægt væri að hafa t.d. upphafsstafi barnsins í svona og hengja á hurðina eða á meðal myndaramma uppá vegg? Ekkert mál að gera svona sjálfur, þá helst með gerviblómum til að þetta endist nú eitthvað:)

 

DIY: SUMARKLAKAR

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Anna Ragnarsdóttir

    18. May 2014

    Ég elska hvað þú ert orðin væmin og indæl með öll þessi barnaherbergi og blóm. Hlakka til viðbótarinnar við stórfjölskylduna :)