fbpx

HUGMYND

Fyrir heimiliðÓskalistinn

Ég er hrikaleg þegar ég á að vera að taka til.. ég dett í voðalegann ‘dúllerí’ gír og fer að fletta gömlum blöðum og raða hlutum óþarflega mikið. En sem betur fer því að ég rakst á þetta H&H síðan 2011 með heimili Öldu stílista á forsíðunni. Ég sem er í smá fríi á morgun ætla því að skella svona á vegginn hjá mér. Fíla hvernig veggurinn er “klipptur út”.

Þarna sést líka glitta í apann eftir Kaj Bojesen sem minnti mig á að ferð í Epal bráðlega er “bráðnauðsynleg.”

:)

WANTED

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Pattra's

    29. October 2012

    Alda er smekkkona :)

  2. Halla Ýr

    29. October 2012

    Hvenær fáum við svo að sjá myndir úr nýju íbúðinni? kv. ein spennt :)

    • Svart á Hvítu

      29. October 2012

      Sem fyrst…. er svo hæg þessa dagana.. en þetta fer allt að smella:) Fæ guðdómlega H&M home sturtuhengið mitt í vikunni og gesti á föstudaginn svo það er deadline-ið mitt;)

      • Halla Ýr

        30. October 2012

        Spennó :)

  3. Ragga

    29. October 2012

    Vá, mér finnst þessi hugmynd einmitt svo töff – er alltaf að reyna að sannfæra manninn minn um að þetta yrði gasalega smart og lekkert en hann er ekki að gefa sig!
    Smelli svona kannski bara á þegar hann fer í rjúpu um helgina ;)

    • Svart á Hvítu

      29. October 2012

      Já það er best að gera svona breytingar ein/n heima haha, það hefur oftast gengið hjá mér:) Ég sýndi samt drésa mínum þessa forsíðu í gær og hann fílaði þetta -sem betur fer.. Því annars hefði hann bara þurft að vera ósáttur við þetta haha.