fbpx

WANTED

HönnunÓskalistinnPersónulegt

Flower table eftir Christine Schwarzer væri mjög vel þegið í stofuna mína.. einn daginn.. eins og með svo margt annað;)

 

Það kemur í tveimur stærðum og í nokkrum útgáfum, en mér finnst þetta svartbæsaða hér að ofan vera langfallegast.

Ég er að njóta þess að vera ein heima í kvöld og nördast smá… Við fengum s.s Ikea sófann okkar LOKSINS í dag, en ég hef beðið lengi eftir að hann komi aftur til landsins. Þá þurfti að hliðra öllu til í stofunni og mér finnst sko ekki leiðinlegt að þurfa að raða öllu uppá nýtt;)

Betri mynd síðar.. ætla að strauja smá yfir nýja vin minn til að hann lúkki sem best.

PS. nýja vinkona mín MacBook Air fékk líka að vera memm á myndinni, hún var keypt fyrir 2 vikum síðan og er enn ósnert… En það er loksins farið að róast hjá mér eftir nokkur verkefnaskil og ég ætla að opna hana á morgun #spennt

Góða helgi!

PERFUME TOOLS

Skrifa Innlegg

9 Skilaboð

  1. SigrúnVikings

    27. October 2012

    Til lukku með nýja sófann :D Hafðu það huggulegt í kvöld!

  2. Erla

    28. October 2012

    Þetta teppi er svo fallegt

  3. Margrét

    29. October 2012

    Mjög svo sammála þér um að þetta væri vel þegið..!

  4. Guðrún

    30. October 2012

    Er þetta Ikea borð?

  5. Svart á Hvítu

    30. October 2012

    Flower table fæst í Epal.. en þetta heima hjá mér er Ikea:)

    • Guðrún

      1. November 2012

      Já djók ég meinti borðið heima hjá þér :) Takk! :)

  6. Eva Dögg

    31. October 2012

    Oh þú átt svo mikið af fínu Svana! Verð að fara að kíkja í heimsókn bráðum :)

  7. Hanna Dóra

    12. March 2013

    Hvað heitir þessi sófi?