Klassísku Nagelstager kertastjakarnir voru að koma út í messing og eru alveg gullfallegir í þeirri útgáfu. Kertastjakarnir voru upphaflega hannaðir af Fritz Nagel árið 1965 en hætt var þó að framleiða þá í fjölmörg ár og var þá helst hægt að finna þá á antíkmörkuðum. Það eru aðeins örfá ár síðan að stjakarnir voru uppgötvaðir á ný og settir í endurframleiðslu og þá drógu margir sína gömlu stjaka fram úr skápum og hafa haldið áfram að safna. Nagelstager eru ofboðslega falleg hönnun sem ég gæti vel hugsað mér að safna einn daginn.
Ég get þó ekki gert upp við mig hvort ég sé hrifnari af gulli eða silfri? Fyrir áhugasama þá er Snúran söluaðili Nagelstager á Íslandi.
Skrifa Innlegg