Ég kíkti við í dag til vinkonu minnar og teiknisnilla Heiðdísar Helgadóttur, það er afar hentugt að það eru bara nokkur skref frá mér í stúdíóið hennar á Strandgötunni og því kíki ég af og til við og trufla hana í vinnunni. Ég fór reyndar í dag í öðrum tilgangi en að versla handa sjálfri mér en allt í einu er ég komin með þessa hrikalega fallegu Jellyparty mynd inn í stofu til mín í mátun. Þessi mynd hefur heillað mig í langan tíma en þær voru að koma úr innrömmun í dag og er sjúhúklega fallegar….
Ég myndi þó líklega hafa hana á öðrum stað og þá upphengda, en fínt að máta aðeins við umhverfið:)
Og svo er blá líka mjög pretty…
Ég er alltaf jafn skotin í verkunum hennar og á sjálf nokkrar ugluteikningar sem eru nú orðnar ansi frægar. Ég mæli svo sannarlega með því að kíkja í fjörðinn fagra á morgun því þá er 20% kynningarafsláttur af Jellyparty myndunum, en bara á morgun í Stúdíó Snilld – Strandgötu 29 HFJ.
Mæli með!
x Svana
Skrifa Innlegg