Ég fæ að deila með ykkur einni mynd á þessum ótrúlega fallega degi. Það reynir virkilega á sjálfsagann að sitja inni og vinna við tölvuna þegar að sólin loksins kemur fram og er í þessu líka góða skapi. Herbergið hans Bjarts Elíasar varð fyrir valinu í tilefni þess að mamman tók til um helgina – þá sjaldan sem það er ekki dót útum allt þarna inni.
Herbergið er hlýlegt og fallegt og þarna má finna mögulega of mikið af dóti. Það er að vísu í dótakössum við hliðina á skrifborðinu mínu sem sjást ekki á myndinni. Ég er með litla vinnuaðstöðu inni hjá Bjarti sem hefur ekki verið neitt vandamál hingað til og mér finnst í góðu lagi að samnýta herbergi í litlum íbúðum. Tekk náttborðið er frá langaömmu minni og tekk kommóðuna gerði Andrés upp svo mér þykir stíllinn vera dálítið persónulegur en á veggjum eru einnig nokkrar myndir ýmist eftir vinkonur mínar eða mig sjálfa sem ég skipti reglulega út. Ikea leikeldhúsinu breytti ég smávegis fyrir löngu síðan, setti marmarafilmu á borðið og spreyjaði höldurnar og kranann í gylltu. Motturnar á gólfinu eru frá HAY og frá H&M home, en teppið sem liggur yfir stólnum er frá Iglo+Indi. Sólin skein svo skært þegar ég tók myndina að það sést varla í Svana-óróann sem hangir í loftinu en þann fékk ég í gjöf frá eiganda Flensted Mobiles en honum þótti ég þurfa að eiga einn “Svönu” óróa.
Þið látið mig vita ef það er eitthvað fleira sem þið viljið vita:)
Skrifa Innlegg