fbpx

HEIMA HJÁ STÓRSTJÖRNUNNI MILEY CYRUS

Virta tímaritið Architectural Digest kíkti við á dögunum til stórstjörnunnar Miley Cyrus sem hefur komið sér vel fyrir á glæsilegu heimili sínu í Los Angeles. Það var mamma hennar Tish Cyrus sem er einnig umboðsmaður Miley, ásamt samstarfsfélaga sínum, hönnuðinum Mat Sanders sem hönnuðu nýja heimilið frá grunni, en eins og frægt er orðið þá brann heimili Miley til kaldra kola árið 2018 í skógareldunum í Kaliforníu.

Nýja heimilið hennar er algjört æði og endurspeglar karakterinn ansi vel! Dýramynstur, marmari, einstök listaverk og hönnunarsafngripir og útkoman er eitthvað allt annað en við erum vön að sjá. Hressandi!

Kíkjum í heimsókn –

Myndir : Architectural Digest // Fleiri myndir og viðtalið í heild sinni má lesa hér. 

 

17 SMART HLUTIR TIL AÐ GERA PALLINN KÓSÝ

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Alma

    2. May 2021

    Ekki skemmir fyrir að í stofunni er Puzzle table eftir Gullu Jónsdóttur.