fbpx

HEIMA HJÁ EIGENDUM SÆNSKA GRANIT

Heimili

Þið eruð mörg sem kannist eflaust við sænsku verslunina Granit sem er ein sú allra flottasta og má þar finna úrval af minimalískum og smart fylgihlutum fyrir heimilið. Hér má þó sjá heimili eiganda Granit sem er einstaklega flott, hér úir og grúir af fallegum hlutum úr öllum áttum, stíllinn er dálítið hrár sem einkennir einmitt vöruúrval Granit. Það er mjög mikið í gangi og smá skipulagt kaos virðist vera, en ætli það sé ekki áskorun að vera verslunareigandi og vilja ekki sanka að sér of mörgum hlutum…

    

Myndirnar hef ég geymt hjá mér of lengi svo uppruni myndanna hefur því miður tapast – en heimilið er sérstaklega skemmtilegt og svo mikið að sjá! Þau virðast ferðast víða enda má finna fjölmarga trélistmuni á heimilinu sem eiga uppruna sinn til Afríku og verður heimilið eitthvað svo heillandi þegar það er skreytt öllum þessum hlutum sem segja sögu.

HIÐ FULLKOMNA HEIMILI?

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Ella

    19. January 2018

    Þetta er geggjað! Vá!