fbpx

Harem pants!!!

Ég er alltaf að leita mér að hinum fullkomnu svörtu Harem buxum eins og þær eru gjarnan kallaðar…
Ég á einar ljósar úr Zöru sem ég alveg elska elska, finnst þetta svo töff!

Svo jæja elsku dúllur, þið hafið svo oft komið með frábærar ábendingar,
hvar fæ ég flottustu Harem buxurnar í dag? :)

-R

Því það er alveg að koma sumar...

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Hófí

    7. January 2010

    Ég á svona eins og þessi skvísa á neðstu myndinni. Þær fást í Vero Moda. Ég keypti þær reyndar fyrir löngu en komst að því, mér til mikillar mæði, að þær eru víst ennþá til. hehe. En þær eru sjúklega flottar, þægilegar og ódýrar :)
    Tips óskast á svartar basic harem buxur!*

  2. Anonymous

    8. January 2010

    Sjæzeee.. ég er alltaf að leita, mátaði reyndar einar í ZÖRU en þær voru ekki my thing!

    Plís, plís, plís láta vita :-))

    xxx Eygló

  3. SVART Á HVÍTU

    8. January 2010

    Já nkl ég hef mátað milljón en sumar gera mann eitthvað soldið spes!
    Við höldum leitinni áfram:)

  4. Anonymous

    8. January 2010

    Já þetta er rosa töff!
    Klæðir þetta þær sem eru með miklar mjaðmir samt? Vil ekki auka við þær :)

    -Halldóra

  5. Glys&Glamúr

    8. January 2010

    Sælar dömur. Ég var að koma heim úr velheppnuðum verslunarleiðangri og fann þessar líka geggjuðu buxur í “Verð'að máta” = VM í Smáralind ;) Þær kostuðu 4.990 á útsölu og þær eru alveg eins og ég vildi hafa þær. Þær eru mjög síðar þannig að þær henta vel leggjalöngum en krumpast samt aðeins að neðan. En ég er sko alveg með mjaðmir en samt finnst mér þetta alveg ótrúlega flott.

    Endilega kíkið þangað!

  6. Katrin

    9. January 2010

    Hæhæ,

    Var að kaupa mér einar mjög flottar í Monki í Kaupmannahöfn. Þær eru svolítið svipaðar og þessar eins og á fyrstu myndinni. Ég keypti dökkgráar en þær eru líka til svartar.

    Hér er slóðin á þær:
    http://www.monkiworld.com/se/collection/#/product226

    Þær eru háar í mittið og rosalega þægilegar :)

    Og já! Ekki má gleyma að Monki er sem stendur með 50% útsölu á öllum vörum =)

  7. SVART Á HVÍTU

    10. January 2010

    Takk stelpur, ég ætla að byrja á því að kíkja í VM og sjá hvort maður finni eitthvað fallegt þar, annars eru þessar frá Monki svaka flottar!:)