fbpx

Handalína

Umfjöllun
Handalína er nýleg efnabúð við Vitastíg í miðbæ 101.
Mér skilst að það séu mæðgur sem eiga þessa búð og eru þær með fulla búð af æðislegum efnum sem þær hafa keypt af gömlum lagerum héðan og þaðan, frá ýmsum tískuhúsum heyrði ég!
Ég kíkti við hjá þeim í dag og keypti mér svaka fallegt efni í kjól sem verður saumaður um helgina! Ég sá svo mikið af fallegum efnum að núna er ég á fullu að brainstorma um hvað ég get saumað mér fleira!:)
Og það besta við þessa efnabúð er að efnið er á MJÖG góðu verði!
Ég hef svo oft lagt leið mína í Virku t.d. en einhvernveginn ekkert fundið, eða ekki týmt að kaupa efni, svo þetta var ný upplifun fyrir mér!:) Mæli með því að kíkja! Og ef þú segist ekki kunna að sauma þá er það bara bull, það geta allir saumað!!
-R

Nude tights

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Anonymous

    7. July 2010

    Var einmitt líka þarna í dag og þær eru mjog nice sem er með þessa búð;)

    kv. greta

  2. The Bloomwoods

    7. July 2010

    Mun klárlega kíkka þarna einhvertíman :D
    Endilega settu inn myndir af kjólnum þegar hann er tilbúinn ; )

    XX
    V

  3. I MUST GET THAT

    8. July 2010

    Skellti einmitt í eitt pils í gærkvöldi úr efni frá þeim sem ég keypti í seinustu viku, hvítt með litlum akkerum, LOVEIT!