Íslenski Fuzzy kollurinn var hannaður árið 1970 af Sigurði Má Helgasyni, og hefur alla tíð verið afar vinsæll sem gjöf, margir ferðamenn kippa stólnum líka með sér heim því að hann kemur í mjög þægilegum umbúðum með haldfangi. Ég var að slæpast á netinu nýlega og rakst á áhugaverða danska hönnunarstofu sem heitir Lop Furniture sem er að framleiða kolla sem eru alveg hrikalega líkir Fuzzy!
Hér að ofan er íslenskur Fuzzy, dropalagaðar og renndar viðarfætur ásamt íslenskri gæru.
Þessar 2 myndir tók ég af facebook síðu Lop furniture en þarna má sjá þrífættann gærukoll með renndum dropalöguðum fótum. Þessi er líka örlítið lægri.
Kollarnir eru óeðlilega líkir til að mögulega hægt sé að segja þetta vera tilviljun!
Halló halló, hvað er í gangi?
Skrifa Innlegg