Stundum nenni ég hreinlega ekki að bíða eftir að fá aðstoð til að geta gert hlutina almennilega. Ég var heima í allan gærdag með strákinn minn vegna flensu en ég hef það sem mottó að vera ekki í tölvunni þegar hann er vakandi og því þurfti ég að finna mér eitt og annað að gera yfir daginn. Þá mundi ég eftir þessari frauðplast rósettu sem ég átti ofan í skúffu og ákvað að skella henni upp eins og skot. Svona þar sem að ég hef enga kunnáttu í að aftengja ljós þá ákvað ég bara að skera rósettuna inn að miðju og troða þannig rafmagnssnúrunni í gegn. Svona ekta “skítamix”. Ég er ægilega glöð með að vera loksins komin með rósettu í loftið, en þarf núna næst að finna bestu leiðina til að laga sárið:)
Og svo færði ég til og frá myndir á veggjum og leyfði þessum fugli að koma inní stofu og finnst hann bara koma nokkuð vel út:)
Svo vil ég endilega nýta mér aðstöðu mína hér á blogginu og hvetja ykkur til að leggja Unicef á Íslandi lið með því að leggja inná neyðarreikning þeirra. Hægt er að leggja inn á : 701-26-102040 Kt. 481203-2950 eða senda SMSið UNICEF í númerið 1900 og gefa 1.500 kr.
Eigið góða helgi!
Skrifa Innlegg