Svefnherbergið er það rými sem er oft látið sitja á hakanum varðandi skreytingar heimilisins en engu að síður er mikilvægt að nostra við það. Hengja upp myndir, raða uppáhalds skarti og ilmkerti á bakka og hafa fallegt náttljós við rúmgaflinn gerir gæfumuninn og ég er viss um að við sofum betur fyrir vikið. Ég mæli líka með því að mála veggina í dökkum lit, það er dásamlegt.
Myndir via Pinterest
Skrifa Innlegg