Fermingarblað Fréttablaðsins fylgdi með blaðinu í dag og ég var fengin til að sýna nokkrar hugmyndir. Ég sjálf kem ekki til með að ferma fyrr en eftir 14 ár og hef engin barnaafmæli haldið ennþá svo þetta var bara ágætis æfing fyrir það sem koma skal:) Ég tók sjálf nokkrar myndir til að birta hér til að fleiri geti notið hugmyndanna.
Dásamlega systir mín skreytti rósakökuna fyrir mig, mér fannst vanta einhvern lit á veisluborðið:)
Það er skemmtileg hugmynd að nota stafabolla frá Design Letter og mynda nafn fermingarbarnsins eða nota önnur skemmtileg orð og hafa á veisluborðinu.
Lakkrísinn frá Lakrids by Johan Bulow var að sjálfsögðu ómissandi á borðið, bæði eru kúlurnar flottar sem borðskraut en líka mjög góðar.
Mér finnst mjög skemmtileg hugmynd að merkja Coke glerflöskur til að setja persónulegan svip á veisluna, “Njóttu Coke með Bjarti” stendur á mínum, en það eru flöskur sem ég átti til í afgang frá skírnarveislunni hans Bjarts en miðana útbjó ég með Photoshop. Doppóttu servíetturnar eru eftir Ingibjörgu Hönnu og fást t.d. í Epal.
Bleik og doppótt pappírsrör.
Fínu pappírsdúskanir sem mig hefur lengi langað til að föndra eftir að hafa pinnað þá nokkrum sinnum á Pinterest. Þeir eru þó tímafrekari en ég hafði gert ráð fyrir og ég verð nú að gefa móðir minni credit fyrir að hafa setið hjá mér heilt kvöld og hjálpað mér að föndra:)
Vinir mínir í Epal voru svo elskulegir að lána mér Design Letter bollana, því eðlilega á ég ekki bollasett sem stafar ‘ferming’! Ljósaseríuna keypti ég upphaflega í Bauhaus en þær eru uppseldar þar og hafa verið lengi, en ég hef séð samskonar á Aliexpress á góðu verði. Pappírskúlurnar á gólfinu fékk ég fyrir nokkru síðan í pappírsdeildinni í Ikea en það er alveg hrikalega skemmtileg deild ef hún hefur farið framhjá ykkur!
Vonandi gefur þetta einhverjum ykkar góðar hugmyndir.
Skemmtilegt frá að segja að ég sagði upphaflega nei takk við þessari bón að skreyta fermingarborð. En eitt af áramótaheitunum mínum sem ég hef sagt ykkur frá áður var t.d. að segja oftar já við tækifærum og hætta þessum sviðsskrekk og feimni. Því hafði ég samband við blaðakonuna aftur og ákvað að skella mér í þetta, og hafði svo bara nokkuð gaman af:)
x Svana
Skrifa Innlegg