Það er vel við hæfi að birta myndir af hollensku heimili í dag þar sem að ég var að dásama hollenskan stíl í gærkvöldi. Það er eitthvað við þennan stíl sem er svo æðislegt. Leyfum myndunum að tala…
Tomado vegghillurnar sjást á mörgum hollenskum heimilum, klassísk hollensk hönnun frá 1950.
Það sem er oft einkennandi á hollenskum heimilum er endurnýting á gömlum við, eflaust innblásið frá einum af þeirra frægustu hönnuðum, Piet Hein Eek sem sló í gegn árið 1990 með útskriftarverkefni sitt frá Design Academy Eindhoven, það var skápur gerður úr bútum úr afgangsvið. Síðan þá hefur hann hannað heilu línurnar af mjög fallegum húsgögnum úr afgangsvið. Ég verð þó að fá að nefna að ég hefði valið aðra mynd á vegginn og sett þessa mynd á ganginn eða í svefnherbergið í staðinn.
Flott eldhúsinnrétting með góðu skipulagi.
Það er ótrúlegt að ég eigi ekki þessa grind því ég var lengi vel með hana á heilanum, hollensk hönnun –Dish bunny washing up rack. Ég gerði tilraun til að finna hana á netinu núna en hún virðist vera uppseld allsstaðar, mögulega þá hætt í framleiðslu?
Myndir frá vt wonen.Mjög fallegt heimili og persónulegur stíll, hollendingarnir eru nefnilega alveg með þetta þegar kemur að hönnun og heimilum. Ég ætla að sýna ykkur nokkur hollensk heimili í viðbót á næstu dögum, við skulum aðeins hvíla þessi sænsku í bili;)
x Svana
Skrifa Innlegg