fbpx

FALLEGT HEIMILI : MEÐ FISKIBEINAPARKET & MARMARA

Heimili

Fallegt heimili á fallegum degi.

Mánuður í nýtt heimili eða eitthvað svoleiðis… ég hef enga dagsetningu til að deila með ykkur hvenær við flytjum inn og ég er sallaróleg hér í foreldrahúsum. En það er gaman að skoða falleg heimili sem gefa innblástur. Hér er það eldhúsið og gólfefnið sem heillar mig, fiskibeinalagt parket er draumur í dós en þó fjarlægur draumur. Við erum með budget og ætlum ekkert í neinar framkvæmdir strax fyrir utan jú að skipta um gólf, mála og taka niður loftpanel, annað kemur með tíð og tíma. Draumurinn væri að geta sett marmara á eldhúsinnréttingu og á gólf í forstofu en það er allt í lagi að leyfa sér að dreyma ♡

Myndir via

 // Fylgist einnig með á Instagram @svana.svartahvitu 

Á ÓSKALISTANUM : STÓR & VEGLEG PLANTA

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Karen Lind

    17. August 2018

    Þetta er algjör draumur!