Síðastliðin sólarhring hef ég boðið instagram fylgjendum @svana.svartahvitu upp á að senda mér spurningar um hvað sem er í gegnum instagram stories og hafa þær verið hver annarri skemmtilegri og fengið mig til að velta ýmsu fyrir mér. Ein skemmtileg var “ef þú gætir keypt þér listaverk á morgun, frá hvaða hönnuði yrði það listaverk?” Ég hef lengi fylgst með áströlskum listamanni, Michael Bond en hans litaskynjun og fagurfræði hittir mig beint í hjartastað. Hann er sjálflærður og verkin hans eru abstrakt og flest eiga það sameiginlegt að vera ótrúlega litrík sem heillar mig. Þið getið kíkt á instagram síðuna hans @michaelbondart og séð betur þessi ótrúlega fallegu verk.
Ég þekki það ekki hvernig það er að fjárfesta í listaverki frá hinum megin á hnettinum – en falleg eru þau! Ef þið lumið á spennandi íslenskri myndlist skiljið endilega eftir athugasemd, það er alltaf gaman að uppgötva nýja hæfileika.
// Fylgist einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg