fbpx

DÖKKT & ÞOKKAFULLT

Heimili

Litir veggja heimilisins eru að dekkjast alveg í takt við það sem við sjáum út um gluggann, svo hlýlegt og notalegt. Sumir kjósa að mála veggi svarta á meðan að aðrir kjósa djúpbláa liti sem eru ofsalega móðins í dag og verður æ vinsælli kostur þeirra sem eru að innrétta heimilið sitt. Það þora þessu þó alls ekki allir, sem ég skil ó vel, enda er ég afar sátt við mína hvítu veggi þó svo að þetta kitli smá, að mála stofuna í fallegum gráum lit. Það þyrfti þó eitthvað mikið að gerast ef ég tæki mig til og málaði, enda er nennan þegar kemur að heimilinu í sögulegu lágmarki… Sænski ljósmyndarinn Kristofer Johnson er afar hæfileikaríkur og tekur gjarnan myndir fyrir H&M home og Ikea ásamt allskyns djúsí tímaritum. Þessar hér að neðan tók hann fyrir breska Elle Decoration og þær fanga akkúrat þessa stemmingu sem ég á við, þetta hlýlega og notalega.
Kristofer_Johnsson_1204 Kristofer_Johnsson_1204 copy Kristofer_Johnsson_1203 Kristofer_Johnsson_1203 copy Kristofer_Johnsson_1201 Kristofer_Johnsson_1201 copy

Myndir: Kristofer Johnson, stílisti: Saša Antić

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.4211

ÞEGAR PENINGAR ERU ENGIN FYRIRSTAÐA...

Skrifa Innlegg