Hún Pella vinkona mín Hedeby er sú allra smartasta ef ég hef ekki sagt ykkur það milljón sinnum áður. Hún starfar sem stílisti meðal annars fyrir sænska risann Ikea og gerir þar hverja snilldina á eftir annarri. Nýjasta verkið er heimatilbúinn höfðagafl sem er einfaldlega úr málaðri MDF plötu en mesta snilldin er að á bakvið gaflinn eru festar nokkrar myndarammahillur úr Ikea sem er fullkomin lausn fyrir bækur til að grípa í fyrir svefninn. Trixið er þó að mála höfðagaflinn í sama lit og vegginn til að ná fram þessari fallegu dýpt eins og sjá má á myndunum hér að neðan.
Ljósmyndir: Ragnar Ómarsson via Ikea
Myndirnar birtust á Ikea blogginu / Ikea Livet Hemma sjá hér. Alveg fullkomið heimaföndur ekki satt? Hvað segið þið var ekki einhver hér að leita sér að næsta DIY verkefni:) Skiljið endilega eftir athugasemd eða smellið á like hnappinn ef ykkur líkaði færslan.
Skrifa Innlegg