fbpx

DIY

DIY

Hér má sjá vinkonu mína hana Shenae Grimes aka Annie úr 90210 á heimili sínu í Hollywood, þessir draumafangarar bakvið hana eru svo ótrúlega fallegir. En í morgun þegar ég var að skoða hina bráðskemmtilegu síðu P.S. I made this rakst ég á hvernig hægt er að útbúa svona sjálfur.

Ég gæti vel hugsað mér að föndra nokkra svona:)

P.s. hvort kallið þið svona draumafangara eða andafælu?

ANDY WARHOL

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Silja M

    23. February 2013

    Ótrúlega fallegt! Ég hef alltaf kallað þetta draumfangara :)

  2. Hilrag

    24. February 2013

    draumafangara, ég hef aldrei heyrt hitt nafnið.. hehe

    sniðugt diy :)

    xx

  3. Sunna

    24. February 2013

    Vá, en fallegt! Mig klæjar í puttana að prófa. Og já, sammála öðrum, í mínum bókum heitir þetta draumafangari. Hitt hljómar líka óheppilega mikið eins og andfýla…? Það er að minnsta kosti ekki alveg jafn bóhem og rómó :)

    • Svart á Hvítu

      24. February 2013

      Ég lagði þetta s.s undir vinkonu mína þegar ég vissi ekki hvað ég ætti að kalla Dreamcatcher, og samkvæmt orðabók er það andafæla haha.. en já frekar slæmt nafn!
      :)

  4. Eyrún

    24. February 2013

    Draumafangara ;)

  5. Dagný Bjorg

    24. February 2013

    Svo fallegt! Búin að langa í einn svona mjöög lengi :)

  6. Ágústa

    25. February 2013

    Við Yrja bjuggum til ansi sætann svona úr gömlum blúndudúk. Kom ferlega vel út og Yrja hefur dreymt fagra drauma síðan ;)

    • Svart á Hvítu

      25. February 2013

      Vá það hljómar mjög vel:) ég þarf að skella mér föndurkassann sem fyrst!